Aðalvalmynd

Auglýsing

Birna og Krissa í hár saman

23. nóvember 2010 klukkan 03:27

Birna Íris og Krissa í hár saman
Þær eru nú ekki fallegar fréttirnir sem berast úr vinahópi Dísu en sögur herma að Birna og Krissa eru víst í því að hnakkrífast yfir því hvor sé betri, Valstómatsósa eða Heinz og hafa þessar deildur gengið það langt að þær slógust á göngum HÍ, rífu í hár hvors annars og klóruðu heiftarlega.

Birna og Krissa hafa þó ekki alltaf verið ósáttar, þær kynntust fyrst fyrir 7 árum þegar þær hittust fyrir algjöra tilviljun í Jollasjoppunni gömlu í Hafnarfirði en í þá daga voru þær að klára 10.bekkinn, Krissa var í Garðaskóla og Birna í Flataskóla og höfðu þá eðlilega ekki mikið spjallað saman.
Hins vegar vildi svo skemmtilega til þennan daginn að þær pöntuðu sér eins tilboð í Jollasjoppunni, þ.e hammara, kók, franskar og tómatsósu sem var víst einstaklega vel heppnuð.
Vinskapur þeirra byrjaði þarna strax og eyddu þær miklum tíma saman og eftirlætisyðja þeirra var að sauma út og það var eins og þær hugsuðu sem ein manneskja þegar kom að saumamennskunni.

Ekki ætla ég að eyða meira plássi í að útlista þeirra góðu ár en fyrr í kvöld voru þær að tala um sín fyrstu kynni og barst talið tómatsósuni góðu sem boðið var upp á þann daginn og eins og áður var sagt þá deila þær um hvort það hafi verið Heinz eða Valstómatsósa.
Ég vona hins vegar að þær ráði fram úr þessu.
Takk fyrir lesturinn.

Hilmar Ægir Þórðarson

Viedeoblogg

24. febrúar 2009 klukkan 22:09
kíkja á þetta

http://www.youtube.com/watch?v=BuwGIUhRIWc
Hilmar Ægir Þórðarson

Bifreiðar sem ég átt

10. febrúar 2009 klukkan 21:57
Það er kominn tími á að fjalla um allar þær bifreiðar sem kallinn hefur átt í gegnum tíðina, ekkert sérlega margir vagnar en allir hafa þeir sæina persónuleika, vonir og þrár.

Júní 1998 - Daihatshu Charade árgerð 1988, verð 115000 , rauður    
  
sambærilegur bíll                                          

Minn fyrsti bíll, hann reyndist mér bara hreint ágætlega, kom mörgum á óvart hvað hann gat.  Hann bilaði lítið sem ekkert og fór það sem hann átti að fara og eyddi litlu bensíni.

kostir= eyðslugrannur og óvenjuseigur miðað við stærð, komst í gegnum alla snjóskafla og hafði það af að keyra á ættarmótið árið 2000 þrátt fyrir svartsýni hjá nær öllum mér og dísu.

Gallar= kraftlítill og ekki var nú farangusrýmið neitt til að hrópa húrra fyrir,hávaðasamur

Tjón= bakkaði einu sinni á ruslagám og braut eitt ljós.

Seldur= keyrði þennan út.afskráður í september 2000

September 2000 - Toyota Corrola árgerð 1989, verð 145000, rauður

Svipaður og bíllinn, það besta sem google fann

Þessi var ágætur, um það bil einum klassa fyrir ofan daihatsúinn.  Miðstöðin virkaði vel og hann var eylítið íburðarmeiri en sá fyrri. Hann var sjálfskiptur sem var nýtt fyrir mér og því gat ég leyft Dísu að keyra hann svolítið.

Kostir= Traustur og var ekkert að bila, 5 dyra sem var betra en sá fyrri

Gallar= eyddi alltof miklu bensíni og var farinn að mynda full mikið af ryði.

Tjón= Mútter bakkaði einu sinni á rafmagnskassa og dældaði að aftan og svo gerði ég betur og keyrði á einhverja kellingu rétt hjá útvarpshúsinu þegar ég var að keyra heim af leik með FH í intertotokeppninni og því miður voru tveir leiðindafarþegar(Jóhann og Sverrir) með sem þurftu að hafa gaman af þessu

Seldur= seldi hann fyrir 0 kr oktober 2002 enda var hann orðinn alveg verðlaus eftir alla meðferðina.

Oktober 2002 - Opel Corsa árgerð 1998, verð 480000, blár

Kát norsk húsmóðir með sambærilegan opel og ég átti, glæsilegir vagnar.

úrvalshraukur þarna á ferð.  kraftmesti bíllinn minn til þessa en í honum var að finna 1400 vel sem er væntanlega enn til staðar.  Hann var 3 dyra, fagurblár og yndæll. Það eina sem bilaði á minni tíð var pústkerfið en það er eithvað sem gerist bara.

Kostir= eyðslugrann og kvikur, komst allt sem þurfti að komast.

Gallar= heldur lítið farangusrými

Tjón= ekkert

Seldur= mútter yfirtók lán í febrúar 2004

Apríl 98, Fiat brava, árgerð 1998, verð 580000, grænn

Sami litur en minn var ekki á álfelgum.

Þessi var ekki alveg að gera sig og mín verstu kaup án efa.  Hann fór nú ágætlega af stað, var kraftmikill, yfir 100 hestöfl.  Hann var sæmilega rúmgóður og virtist fær í flestan sjó en í ágúst 2004 var ég á leið með fjölskyldunni heim frá Akureyri þegar bölvuð tímareiminn ákvað að slitna alltof snemma.  Þetta olli miklu veseni og leiðindakostnaður var af þessu og ég fékk hann til baka í nóvember Þannig að hann var töluvert frá og í þokkabót virkaði útvarpið aldrei eftir að ég fékk hann til baka eftir viðgerð.

Kostir= fáir

Gallar= ákvað að láta tímareimina slitna, eyðslumikill, það vantaði þó ekki rúðupiss þegar reimin fór.

Tjón= tímareimavesenið, engin árekstur þó.

Seldur= Brimborg keypti hann í mars 2005 á 300000

Mars 2005, Ford Focus, árgerð 2005, verð 2080000, dökkblár

Þessi spúsa á svipaðan bíl og minn er en liturinn á þessum er aðeins ljósari.

Hef átt þennan í tæp 4 ár, hefur reynst vera ágætur bara, held að allir viti um mælarborðarleiðindin en það er yfirstaðið og hann stendur eftir sterkari en áður, lán á honum er í íslenskum krónum þannig að ekki er ég að borga hátt í 100þús kall á mánuði eins og sumir.


Kostir= lipur og góður, frekar eyðslugrannur, gott farangusrými

Gallar= Hann bilaði bölvaður og var frá í 2 mánuði, það var erfiður og fúll tími.

Tjón= enn ekki neitt

Seldur= á hann ennþá.

Hilmar Ægir Þórðarson

Low man´s lyric

30. janúar 2009 klukkan 23:01
Ekkert kók
takmarkað nammi
allra helst græna fæðið
Engir borgarar
Engar pizzur
Engin KFC þegar ég fer næst í bæinn
Quisnos nei!
franskar, virkar ekki
snakk gleyma
rjóma og sykurbættur ís, tekinn af dagskrá
kökur, helst ekki
grillkjöt tæpt
pepsí í vinnunni, nei það er ekki að ganga

Það er ekki tekið út með sældinni að fara í aðhald, það var hell að afeitra sig af kókinu, fékk hitafall einn daginn, þ.e hitastig rétt rúmlega 36, það var verra en versta þynnka. John Lennon samdi lagið cold Turkey, lýsti mér vel í 2-3 daga. Ég var önugur og uppstökkur og tók því ekki sérlega vel ef vinnufélagarnir voru að fela fyrir mér verkfæri eða hráefnið sem ég var að vinna með.
gengi Liverpool hefur verið betra, gera bara jafntefli og ég þarf að hlusta á jarmið í Einari Andréssyni nær daglega,,við vinnum þó við séum með nær alla meidda" lýsir hvað hann er takmarkaður, sá eini sem þeir sakna er Rooney, hverjum er ekki sama um rafael og Fabio og svo Wes Brown, maður sem hvort er hvort eð er vonlaus.
Ég held að allt muni þetta þó skána, mitt lið kemst á skrið og þaggar niður í manninum sem lék Óðinn í dagvaktinni, hef líka heyrt það að hann og Valdi Snúra séu eitthvað að stinga nefjum saman, svo sem ekki gaman fyrir Valda að bróðir hans skyldi fá allan útlitspakkann, veit ekki með tónlistarlega getu, hef ekki heyrt Valda lemja í dósir þannig að er séns að hann sé jafn hæfileikamikill og bróðir sinn tónlistarlega en popplúkkið fékk hann þó ekki en hefur margt annað. 
Hann er :herðarbreiður,gleðigjafi,hláturmildur maður,heldur með Liverpool, finnst gaman að bögga fljótdalsnobbarasmiðinn og svo mun hann lúta í gras þegar marg umrætt pes eða Fifa mót verður haldið, ég mun taka það sama hvaða leikur verður spilaður.

takk low man is due.
Fyrirgefið mér þennan pistil.
Hilmar Ægir Þórðarson

Endurplanað

14. janúar 2009 klukkan 23:07
Hugsaðu bara um það
upp á síðkastið hef ég verið efins
hljóður þegar ég var vanur að tala
fjarlægð allt í kringum í mig
sem fylgist með mér mistakast og verða veikan
lífið er yfirþyrmandi
þungt er höfuðið sem ber krúnuna
ég myndi elska það að verða sá sem veldur þér vonbrigðum þegar ég er ekki að falla

en þú ert ekki að skilja þegar ég reyni að útskýra
af því þú veist þetta allt og heldur að hlutirnir breytist aldrei
en gætir þurft á minni hönd að halda þegar þú ert að falla saman
þín slæma veika staðsetning man þegar ég sleppi..

þér og mér erum komin komin í gegn og endurplönuð
það virðist vera sem þú sért ekki ánægð
með of mikið á þinni könnu
svo þú yfirgefur og ég trúi ekki öllu kjaftæðinu sem ég finn
lífið er yfirþyrmandi
þungt er höfuðið sem ber krúnuna
ég myndi elska það að verða sá sem veldur þér vonbrigðum þegar ég er ekki að falla

þú ert ekki nógu góð fyrir mig
guði sér lof að þessu sé lokið
þú lætur halda að ekkert sé að þar til þú grenjar
þú lætur að lífið sé langt þangað til þú deyrð
þú lætur halda að ekkert sé að þar til þú grenjar,grenjar í mér
þú lætur að lífið sé langt þangað til þú deyrð,deyrð á mig
þú heldur að allir séu eins
ég held að enginn sé eins og þú
þú skemmir allt saman og heldur áfram að ríða í mér þangað til þessu er lokið og ég verð ekki samur aftur
hugsaðu bara um það, þú nærð þessu.

Limp Bizkir re-arranged
íslenskur texti Hilmar Ægir Þórðarson.




Hilmar Ægir Þórðarson

Ingimar er sko enginn hommi

11. janúar 2009 klukkan 21:33
Ég vona svo sannarlega að enginn hafi fengið það á tilfinninguna eftir síðasta pistil að hann Ingimar væri hommi, hér eru nú myndir sem sýna hvurs lags hustler drengurinn er.


Kannski smá hommalegur svipur og ég held að það sé bara vegna herramennskunar að hann sé ekki með krumlunar í júllunum á Mörthu.


Martha kunni nú að meta kallinn svona nýklipptan en svo fór þetta eitthvað flatt hjá honum heyrði maður


En hann átti þó alltaf þennan fína snakkpoka til að narta í eftir að allt klúðraðist með Mörthu.
Hilmar Ægir Þórðarson

Dagdraumar Ingimars Torfa

16. desember 2008 klukkan 21:00

Ingimar Torfi sat eitt sinn og bar og lét hugann reika,,hmm stundum held ég að ég hallist meira að strákunum"


Honum varð hugsað til Dóra vinar síns og ýmindaði hann sér á brókunum einum,,Vodd maður, vá hvað mér finnst hann flottur" hugsaði hann dreymandi.


Imgimar var alveg himinlifandi þegar þessar ljótu hugsanir reikuðu um huga hans.


Hann hallaði sér og hugsaði um hvernig það væri að vera kona og geta sýnt á sér brjóstin og kysst kalla

,,Vodd ég er alveg flatbrjósta bara"


,,já svona hlýtur það að vera að vera kona, unaðslegt"


Síðan varð honum hugsað til sambýlismanns síns ,,Hvað skyldi hann vera að gera, vonandi ekki að gæla við aðra stráka".


,,en hvað um það" hugsaði Ingimar með sér,,ég hef þá alltaf þennan uppi í bakhöndinni".


Þetta var sagan Dagdraumar Ingimars, ég vona að þetta hafi geti létt undir með fólki í skammdegi og kreppu og svo vil ég nota tækifærið og óska Ingimari til Hamingju með að vera að endurheimta bílprófið sitt.

Takk fyrir.
Hilmar Ægir Þórðarson

Pólitískur pistill

24. nóvember 2008 klukkan 23:47

Ég hef haldið málefnum eins og fótbolta og pólitík frá minni síðu, hef reynt að láta hana fjalla um önnur málefni eins og vinnufélagana, fólk sem býr í hinum ýmsum bæjarfélugum og annað athyglisvert en nú verð ég bara að fá að röfla.

Ég horfði á borgarafund í beinni á Rúv í kvöld og var sérstaklega sleginn af einni kerlingabeyglu sem heitir Margrét Pétursdóttir og sem ákvað að hella úr sínum viskubrunnum sem því miður virtust vera mjög takmarkaðir.

Hún byrjaði á að tala um skógarketti og eitthvað þvíumlíkt og bað svo geir að reka Davíð og segja svo af sér sjálfur,það væri nú meiri ábyrgðin.  Næst segir hún að öll ríkisstjórnin eigi að segja af sér án þess að gefa nein sérstök fyrir því enda hafði hún þau sjálfsagt ekki, var bara að nýta sér það að á þessum fundi skipti ekkert máli hvað fundarmenn sögðu það var klappað fyrir öllu, hefði verið hægt að segja að Geir borðaði skít og Davíð drykki piss og allir hefðu fagnað svo gáfulegum ummælum.

,,það fyrsta sem fer í kreppunni eru mannréttindi" klapp klapp, ekki þurfti þetta frekari rökstuðning, flott hjá henni.

Eftir að hafa rausað svo eitthvað um jafnrétti tók hún upp á því að biðja fundargesti að standa upp og kemur svo með þessa góðu línu,,svona auðvelt er það fyrir karlmann að standa upp úr valdastóli og hleypa konu í hann"  Alveg ákkúrat lausnin er það ekki, fara að spá í svona rugli, það eru 4 konur ráðherrar og gegna þær viðamiklu hlutverki en lausnin er tæplega sú að konur þurfi frekar að stjórna, hljótum að þurfa hæft fólki burt séð frá því hvort það hafi göndul eða skuð.

Feministar þurfa alls staðar að troða sér að, þetta ástand leysist ekki með svona einfaldri aðgerð þ.e að standa upp og hleypa einhverjum konum að, ég tel að hlutfall kvenna á alþingi og í ríkisstjórn sé í samræmi við fjölda kvenna sem bauð sig fram.

Ég hef ekki lausnina á því hvað sé best að gera í nú verandi ástandi, reka davíð, burt með stjórnina, kjósa nýja,þjóðstjórn,afnemingu á verðtryggingu eða hvað sem nefnt hefur verið en ég get sko lofað því að þessi lausn hennar Margrétar er sú heimskasta sem hefur komið fram, varla halda Arsenal menn að ástandið þar lagist við að reka wenger og ráða svo Elísabeta Gunnarsdóttur eða Wöndu Sigurgeirsdóttur.

Mín lokaskilaboð eru til ræðumanna, hugsa fyrst, tala svo.

Að lokum bið ég lesendur mína afsökunar á þessum pistli, ég kem ekki með pólitíkst blogg aftur.

Takk fyrir.

Hilmar Ægir Þórðarson

Spánýr pistill

16. nóvember 2008 klukkan 21:49
-Lítið hef ég getað bloggað upp á síðkastið þar sem einn ormurinn minn ákvað að spreyja gassa af rúðuhreinsi yfir lyklaborðið og varð það til þess að þegar ýtt var á s þá sd og þegar ég reyndi að stroka út þá kom bara ð og ef ég gerði n þá kom bara nm og margt annað í svipuðum stíl og ljóst var að eitthvað þurfti að gera og nú er lausnin komin, nýtt lyklaborð gjörið svo vel og í þetta sinn með usb tengi í stað bláa plöggsins var á því gamla og er það slot í tölvunni því autt núna.

-Ég er kominn aftur í umferðina á focusnum mínum, Brimborg tók á sig nýtt mælaborð og borgaði svo auka 30 kall í reikninginum og verkstæðið Bíley ákvað að slá álíka af þar sem þeim þótti þeir vera full miklir sveitamenn og of lengi að fatta þetta allt saman.

-Valdi snúra hefur verið að ibba sig hér á commentadæminu, hann heitir réttu nafni Þorvaldur Einarsson er bróðir Einars Ágústs fyrrum eurovisionfara og hljómsveitarmeðlims. það vita það þó færri að Valdi fór á sínum tíma í áheyrnarprufu hjá Skímó og þótti koma sterklega til greina sem aðstoðarsöngvari en því miður þá var það útlitið sem skemmdi fyrir honum og var honum ráðlagt að fela sig helst á bakvið trommusettið og til að undirstrika þetta með útlitið þá er Valdi trommari í álbandinu en ekki þótti ástæða til að sýna hann á neinum myndum sem tengjast þessari frábæru hljómsveit- tilviljun??? nei hann hefur hæfileika en það er kostnað útlitisins.

-Ég óska þess að ekkert fyrirtæki fari á hausinn þó svo ég sé ekki yfirlýstur stuðningsmaður ókeypis sjónvarps en það vinnur fólk þarna og ekki óska ég því atvinnuleysis þannig að skjár 1 lengi lifi húrra húrra húrra.

-Fiskur er hollur

-Samkvæmt matseðli vikunar er ekki ís á föstudaginn næsta og hvet ég alla til að mótmæla því kröftulega til dæmis með því að þakka ekki fyrir sig þegar diskum er skilað, einnig skemmir ekki að missa skeið eða gaffal ofan í úrgangsdallana góðu.

-ingvar E Sigurðsson er ofmetin leikari.

-Fleira er það ekki að sinni
Hilmar Ægir Þórðarson

Dísa 20 ára í dag

19. október 2008 klukkan 23:11


Jæja gott fólk, hvaða dagur gæti hentað betur en þessi til að endurvekja doktorinn. Í dag á Dísa oft kölluð Nuggles níski afmæli og af því tilefni verður hér farið yfir hennar sögu til þessa.

0-1 árs - fæddist allt of snemma og byrjaði að orga mikið og hátt fyrsta árið, lærir að reka út tunguna eins og Gene Simmons í Kiss.

1-2 ára - heldur áfram að orga allar nætur þannig að allir á sléttahrauninu verða æfir. Tekur upp á því að týna köllum úr íshokkíspilinu mínu sem ég hafði keypt á 99 krónur sænskar, það var töluverður peningur þá.

2-3 ára - eignast dúkku sem hún ákveður að nefna Gollur, neitar fyrir það seinna.

3-4 ára - hellir því sem hún hélt að væri Brunnavatn en var í rauninni vodki, ég sagði að ég hefði stolið honum af möggu feitu, u still owe me that. Trúir því statt og stöðugt að hún sé með plastbak, lærir að syngja textabrot bæði úr enter sandman og creeping death

4-5 ára - heldur með Val um tíma af því að Hemmi gunn sagði henni að gera það

5-8 - fátt markvert gerist, byrjar bara í skóla og þetta same old bara, eignast þó sega megadrive og svo seinna game boy

8-10 ára nær sínum besta árangri í super marío bros í game boy, getur spilað öll borðin blindandi

10-12 ára - þarna fara hlutinir að gerast, heldur því fram í útvarpinu að íslandsflug fljúgi um á Focking flugvélum, verður vitni að eftirminnilegum millenium cake dansöskri, segir að skítamórall sé góð hljómsveit.

13-15 - hættir loks að trúa því að hún sé með plastbak. Heldur því fram að það sé til lífvera sem heitir plokkfiskur. Tónlistarsmekkur versnar, sekkur djúpt inní 957 en er svo bjargað að hluta til þegar bróðir hennar býður henni á foo fighters.

15-16 ára - Upplifir það í fyrsta sinn að sjá FH verða meistara í fótbolta. Eithvað veldur því að hún hættir að hlusta á 957 og sér hún villu síns vegar og fer að hlusta á almennilega tónlist, kveður hnakkapoppið endanlega á Metallica tónleikunum.

Þetta voru fyrstu 16 ár hennar Dísu, fylgist svo með næsta æviágrip hennar þegar hún verður tvítug.

Nú er Dísa orðin 20 ára og þá held ég áfram þar sem frá var horfið fyrir 4 árum.

Á þessum 4 síðustu árum hefur hafdísi tekist að afreka eitt og annað, henni tókst að útskrifast úr Flensborg án þess sýna mikinn metnað til að vera á svæðinu, hún er í meistaraflokk FH í handbolta og í Háskóla Íslands ásamt Ásgeri Kolbeins og hefur verið að fóta sig á tískusviðinu eins og eftirfarandi mynd sýnir.

http://visir.is/apps/pbcsi.dll/bilde?Site=XZ&Date=20080626&Category=IDROTTIR0101&ArtNo=848738155&Ref=AR&NoBorder

Hafdís er þessi sem er lengst til hægri en hún hafði atvinnu að því í sumar að vera klappstýra á FH leikjum í knattspyrnu og stóð sig ansi vel að sögn en endaði FH sem Íslandsmeistarar.

Hún hefur gert meira á þessum 4 árum og hér koma nokkur dæmi.


Hún starfar í samtökunum Afar fyrir afalausa en það eru samtök sem heimsækir afalaus börn og reyna samtökin að fylla upp í þær eyður sem geta myndast þegar börn eiga ekki afa, hún segir stökur, segir sögur úr sveitinni og hneikslast á fréttunum, allt gert fyrir börnin, gott framtak hjá henni.



Valdís Ragna er vinkona hennar og er hún í sömu samtökum og er ansi góð í fara með meiningarlausar stökur og að mola á borð.

Hafdís vill taka það fram að öllum er frjálst að ganga í samtökin Afar fyrir afalausa því þessi samtök framkvæma ómetanlega hluti.

Í stuttu máli þá vegnar systur minni vel þrátt fyrir að vera komin á þrítugsaldurinn, hún hlustar samt alveg öruglega á 957 í dag þar sem hún vinnur á Hverfisbarnum en henni er enn meinilla við hina ómerkilegu hauka og sannar að slíkt hefur ekkert með aldur eða þroska að gera heldur sýnir að það er almenn skynsemi að leggja fæð á skítapakk hvort sem það eru kr-ingar eða hökarar.

Þessi pistill verður næst uppfærður eftir 5 ár þannig að það er bara að fylgjast með.

Ég setti að lokum inn mynd af henni í futurelook forritið mitt og hér má sjá hvernig hún mun lýta út 25 ára




Til hamingju með fyrstu 20 árin
þinn bróðir Hilmar.

Hilmar Ægir Þórðarson

Könnun

Er töff að eiga Toyota land cruiser